Skólafrí – skíðafrí

Skráð þann February 23rd, 2010. Höf.: Elsa – 4 hafa tjáð sig


Fjölskyldan í Sviss

Fjölskyldan í Sviss

Þá er skólafríið búið að þessu sinni og við stórfjölskyldan ákváðum að skella okkur til Sviss á skíði eins og áður hefur komið fram :) Ferðin gekk vel og allir komu heilir heim. Sváfnir fór í skíðaskóla og tileinkaði sér þar grunnundirstöðuatriði skíðamennskunnar – getur rennt sér, beygt og stoppað :) Birna eyddi mestum sínum tíma í stólnum sínum á bakinu á annaðhvort mér eða pabba sínum og undi sér vel við að skoða útsýnið eða fá sér smá blund. Hún prófaði líka að sitja á snóþotu og fannst það alveg frábært – baðaði út öllum öngum af kæti. Nonni brettaði og skíðaði til skiptis alveg slysalaust :) og heimilisfrúin kannaði brekkurnar aðeins líka… Svæðið sem við vorum á er undurfallegt og tala myndirnar sínu máli um það

 

Janúar

Skráð þann February 9th, 2010. Höf.: Jón – 4 hafa tjáð sig
Birna og Burt Reynolds í áramóta gleði

Birna og Burt Reynolds í áramóta gleði

Janúarmánuður var kaldur og annasamur hérna hjá okkur í hertogadæminu.
Það var snjór og frost nánast allan mánuðinn sem tilheyrandi umferðaröngþveiti sökum þess að Lúxemborgarar nota ekki allir vetrardekk. Eins og gefur að skilja þarf því ekki mikla hálku til að öll umferð stoppi og bílar renni út um allar trissur.
Börnin okkar urðu veik, Sváfnir fékk eyrnabólgu og var á pensilíni í 8 daga og Birna fékk RS vírus og var send til sjúkraþjálfara sem aðstoðaði hana við að losa sig hor og slím.
fleira veikinda tengt, þá var skjaldkirtillinn fjarlægður úr Elsu um miðjan mánuðinn. Ég skilaði inn mastersverkefninu og útskrifast 23.apríl.
Bíllinn okkar tók upp á því að bila, rafmagnið fór af í tvo daga sökum bilana.
Framundan eru vonandi bjartir og skemmtilegir tímar. Í skólafríinu (13.-20. feb) erum við á leiðinni til Sviss, nánar tiltekið til Interlaken sem er við Bernese Alpana í Sviss.
Við á leiðinni til Íslands um páskana. Komum 24.mars og verðum eitthvað inn í Apríl. Vonandi getum við hitt sem flesta!

Janúarmánuður var kaldur og annasamur hérna hjá okkur í hertogadæminu. Það var snjór og frost nánast allan mánuðinn sem tilheyrandi umferðaröngþveiti sökum þess að Lúxemborgarar nota ekki mikið vetrardekk. Eins og gefur að skilja þarf því ekki mikla hálku til að öll umferð stoppi og bílar renni út um allar trissur.

Börnin okkar urðu bæði veik, Sváfnir fékk eyrnabólgu og var á pensilíni í 8 daga og Birna fékk RS vírus og var send til sjúkraþjálfara sem aðstoðaði hana við að losa sig hor og slím. Þá var eitt stykki líffæri, skjaldkirtillinn, fjarlægður úr Elsu um miðjan mánuðinn og er hún óðum að ná sér eftir það. Það var ekki einungis fjölskyldan sem átti í heilsu vandamálum því bíllinn okkar tók líka upp á því að bila, með tilheyrandi verkstæðisveseni.

Í janúar skilaði ég inn mastersverkefninu mínu og vonast eftir að útskrifast 23.apríl n.k.. Fínt að þessi törn sé búin.

En mánuðurinn endaði í mikilli gleði, því þann 30. Jan var haldið Þorrablót Íslendingafélagsins hérna í Lúx og skemmtum við hjónin okkur hertogalega.

Framundan eru vonandi bjartir og skemmtilegir tímar. Í skólafríinu (13.-20. feb) erum við á leiðinni til Sviss, nánar tiltekið til Interlaken sem er við Bernese Alpana í Sviss. Og svo erum við á leiðinni til Íslands um páskana. Komum 24.mars og verðum eitthvað inn í Apríl. Vonandi getum við hitt sem flesta!

Hérna er smá videó af Birnu Borg.

embedded by Embedded Video

Download Video

Hérna eru svo nokkrar myndir frá Janúar

Nýtt íslenskt símanúmer

Skráð þann January 6th, 2010. Höf.: Jón – 3 hafa tjáð sig

Þessi sími tengist fréttinni ekki

Þessi sími tengist fréttinni ekki

Að vera innflytjandi í fjarlægu landi getur verið góð skemmtun. Í hugum flestra hefur það þó í för með sér sársaukafullt aðlögunarferli þar sem innflytjandinn tileinkar sér siði, menningu og jafnvel tungumál innfæddra. Það getur svo leitt til þess að innflytjandinn missir tengingu við fósturjörð sína og jafnvel glati niður sinni eigin móðurtungu.

Bætt tækni gerir innflytjendum aftur á móti sífelt auðveldara að aðlagast hvorki né umgangast innfædda frekar en brýnasta nauðsyn áskilur þeim. Í okkar tilfelli færumst við sífellt nær því marki að þurfa ekkert að samneyti að hafa við þá einstaklinga sem ekki eru þeirri dyggð prýddir að geta tjáð sig á íslenskri tungu. Því í dag, jafnframt því að geta horft á íslenskt sjónvarp og hlustað á íslenskt útvarp (í gegnum netið) og að fá reglulega send sunnlensk fréttblöð þá höfum við nú fengið okkur íslenskt símanúmer. Númer, sem hægt er að hringja í og úr og tala íslensku á íslenskum innanlands taxta. Þetta íslenska símanúmer er enn einn þátturinn sem gerir okkur kleyft að vernda og varðveita Íslendinginn í sjálfum okkur.

Nýja símanúmerið er: 496-1588 … ég endurtek 496-1588.

Jólin

Skráð þann December 29th, 2009. Höf.: Elsa – 2 hafa tjáð sig

Svafnir og Birna

Svafnir og Birna

Við erum búin að hafa það óskaplega gott um jólin og þökkum kærlega fyrir fallegar jólakveðjur og gjafir. Sváfnir var mjög spenntur fyrir pökkunum að sjálfsögðu en Birna kippti sér aðeins minna upp við allt þetta umstang, nagaði bara pappírinn og gjafaböndin af bestu list.
Við fórum á jólaball, í jólamessu, á jólamarkað og bjuggum til jólasnjókarla úr fallega jólasnjónum sem var hérna. Amma Birna er búin að vera hjá okkur, en verður kvödd með söknuði núna seinnipartinn þegar hún heldur aftur til Íslands. Hér má sjá nokkrar myndir frá jólahaldinu
Áramótunum ætlum við að eyða í góðra vina hópi – borða góðan mat og sprengja nokkra flugelda.
Við óskum öllum gleðilegrar hátíðar og gæfuríks nýárs

Jólin koma

Skráð þann December 9th, 2009. Höf.: Jón – 3 hafa tjáð sig
Nóvember og desember eru jafnan rólegir mánuðir í hertogadæminu. Það er þá sem borgin fer í hlýjan jólabúning með tilheyrandi jólamarkaði, þar sem hægt er að versla jóla-glingur, kótilettu í brauði, lúxembúrgíska baunasúpu og náttúrulega gluhvín svo eitthvað sé nefnt.
Birna amma kemur til okkar 17.des og verður hjá okkur yfir jólin. Jólin, sem veðurfræðingar hér meira að segja spá að verði hvít.
Nafna ömmu Birnu, Birna Borg, stækkar og dafnar vel. Hún verður hálfsárs núna í desember. Já, hálfs árs, þetta er fljótt að líða, og manni finnst hún ekki vera nett smábarn lengur.
Hún stækkar svo ört að Sváfnir stóri bróðir er farinn að velta því fyrir sér þeim möguleika (með skelfingu) að litla systir verði stærri en hann. Hann er annars nokkuð brattur, gengur vel í skólanum og búinn að eignast nokkra mjög góða vini í hverfinu.
Af okkur gamla fólkinu er ekki mikið að frétta. Ég er að berjast í að klístra saman mastersverkefninu mínu, fyrstu skil eru 4.jan. Þann 15.jan mun Elsa fara í skjaldkirtils-aðgerð.
Torfi frændi kíkti í heimsókn til okkar í Nóvember á leið sinni til Þýskalands á gula geitungnum. Hann tók lestina frá Bretlandi hingað yfir á meginlandið og bar þeim ferðamáta vel söguna. Það er því ekki úr vegi að við tökum rúnt upp til UK næsta sumar.
Piparkökubakstur

Piparkökubakstur

Nóvember og desember eru jafnan rólegir mánuðir í hertogadæminu. Það er þá sem borgin fer í hlýjan jólabúning með tilheyrandi jólamarkaði, þar sem hægt er að versla jóla-glingur, kótilettu í brauði, lúxembúrgíska baunasúpu og náttúrulega gluhvín svo eitthvað sé nefnt.
Birna amma kemur til okkar 17.des og verður hjá okkur yfir jólin. Jólin, sem veðurfræðingar hér meira að segja spá að verði hvít. Nafna ömmu Birnu, Birna Borg, stækkar og dafnar vel. Hún verður hálfsárs núna í desember. Já, hálfs árs, þetta er fljótt að líða, og manni finnst hún ekki vera nett smábarn lengur. Hún stækkar svo ört að Sváfnir stóri bróðir er farinn að velta því fyrir sér þeim möguleika (með skelfingu) að litla systir verði stærri en hann. Hann er annars nokkuð brattur, gengur vel í skólanum og alltaf að eignast fleiri og fleiri góða vini í hverfinu.

Af okkur gamla fólkinu er ekki mikið að frétta. Ég er að berjast í að klístra saman mastersverkefninu mínu, fyrstu skil eru 4.jan. Þann 15.jan mun Elsa fara í skjaldkirtils-aðgerð.

Torfi frændi kíkti í heimsókn til okkar í Nóvember á leið sinni til Þýskalands á gula geitungnum. Hann tók lestina frá Bretlandi hingað yfir á meginlandið og bar þeim ferðamáta vel söguna. Það er því ekki úr vegi að við tökum rúnt upp til UK næsta sumar.

Hérna eru svo nokkrar myndir.

Myndir

Skráð þann October 26th, 2009. Höf.: Elsa – 9 hafa tjáð sig

BirnaJæja, vegna fjölda áskoranna birtum við nú enn fleiri myndir af okkar daglega lífi hér í Lúxemborginni.
Og vegna fjölda fyrirspurna þá eru allir hressir og enginn flensufaraldur farin að herja á okkur ennþá….
Endilega verið dugleg að kvitta fyrir komu ykkar – okkur finnst svo gaman að fá kveðjur :)

Hér má sjá myndirnar

Nóg að gera

Skráð þann October 5th, 2009. Höf.: Elsa – 4 hafa tjáð sig

epliJæja, enn ein færslan… held að þetta hljóti að vera afgerandi færslumet á hertoganum!!!
En á laugardagsmorgun fórum við sem sé í eplatínsluna góðu með grannanum. Ekki urðum við fyrir vonbrigðum með þessa ferð heldur skemmtum okkur konunglega við að smakka, tína og fræðast um epli. Hann Nico nágranni er sko hafsjór af fróðleik um epli.
Sunnudagurinn var tekin snemma en voru feðgarnir þá búnir að skrá sig í víðavangshlaup, Nonni í tíu mílna hlaup en Sváfnir í 1,1 kílómetra hlaup. Það var nú ekki laust við að það rynnu tvær grímur á Sváfni þegar á hólminn var komið. Öllum krökkunum (5-12 ára) var smalað inn í afgirt hólf fyrir startið og tróðust þar um af mikilli ákefð. En drengurinn var ákveðin í að keppa, vildi sko ekki hætta við enda hljóp hann eins og vindurinn mjög einbeittur þegar til kom. Mamman ákvað að standa á hliðarlínunni og hvetja sinn mann áfram þegar hann hlypi framhjá en pjakkurinn gólaði bara á móti EKKI MAMMA, fannst þetta sko ekki töff!!! Það var svo stoltur gaur sem tók á móti fyrsta verðlaunapeningnum sínum eftir fyrsta hlaupið sitt, var samt pínu svekktur að hafa ekki unnið… það er gott að stefna hátt Hérna eru nokkrar myndir frá helginni og síðustu dögum

Helgin…

Skráð þann October 2nd, 2009. Höf.: Elsa – 3 hafa tjáð sig

Jon 432 (Large)Eins og sjá má erum við alveg að tapa okkur í færslufjölda núna. Annars langaði okkur bara að segja frá því að á morgun erum við fjölskyldan að fara með nágrannahjónum okkar þeim Nico og Nicole að tína epli rétt fyrir utan smábæinn Steinsel í Luxembourg. Einnig mun vera hægt að nálgast perur og plómur á þessum sama stað. Mun næsta vika því líklega einkennast af safagerð, sultusuðu og mauki – allar uppskriftir vel þegnar þar sem þetta er ekki innan reynslusviðs húsmóðurinnar :)
Að lokum langar okkur að sýna ykkur nokkrar myndir úr sumarfríinu okkar á Íslandi og þakka fyrir okkur. Hér er hlekkur á myndirnar

3 mánaða

Skráð þann September 27th, 2009. Höf.: Elsa – 4 hafa tjáð sig

IMG_2359 (Medium)Þá er Birna Borg orðin 3 mánaða og við ekki alveg að standa okkur í myndainnsetningunni. Vonandi stendur það þó til bóta núna þegar vetrarrútína fjölskyldunnar er tekin við. Það er óskaplega margt búið að gerast síðan síðast og allt of langt mál að telja það upp hér – við erum öll hress og kát, látum það bara duga. Hérna eru myndir af okkur fjölskyldunni

Stubba þriggja vikna

Skráð þann July 13th, 2009. Höf.: Elsa – 5 hafa tjáð sig

SvafnirOgStubba

Sváfnir og Stubba

Þá er stubban orðin 3 vikna og dafnar vel. Við höfum reyndar engar nýjar tölur til að segja ykkur en fötin minnka og það er svo sem ágætur mælikvarði á það hvernig næringarupptakan er hjá henni. Stóra barnið á heimilinu er að klára skólan á miðvikudaginn og bauð foreldrum sínum að því tilefni á skólaskemmtun þar sem krakkarnir komu fram og sungu og léku. Okkar maður stóð sig að sjálfsögðu eins og hetja og það voru stoltir foreldrar sem sátu og hlýddu á frammistöðu frumburðarins þó að þau hafi nú ekki skilið söguþráðin til fullnustu…
Annars eru ferðaplön sumarsins að verða klár, Sváfnir kemur til Íslands þann 23. júlí og við foreldrarnir fylgjum á eftir þann 6.ágúst, við munum svo halda heim á leið þann 31.ágúst. Við munum fara í Veiðivötn, skíra stubbuna, kíkja á Hvammstanga, vera í Hveró, sveitinni og í höfuðborginni svo fátt eitt sé nefnt.

Hérna eru nýja myndir